Arion banki: 0370 -26-100840
Kennitala: 100840-2009 Auglýsing |
Ferðadagskrá fyrir Kínaferð 28. ágúst - 15. september 2023.Hér er hægt að nálgast ferðadagskrá fyrir næstu ferð til Kína:
Ferðadagskrá fyrir Kínaferð 28. ágúst - 15. september 2023. Verð: Kr.750.000.- fyrir pláss í tveggja manna herbergi, Í einbýli + 100.000 kr. Allt innifalið. KÍNASAFN UNNARSafnið er á Njálsgötu 33b, en það var opnað 2015. Í því eru margra alda gamlir kínverskir munir, úr ýmsum efnum s.s. keramik, bronsi, látúni, fílabeini, viði, postulíni og silki. Gestir safnsins eru líka velkomnir að skoða stofur heimilis Unnar, sem er á Njálsgötu 33, en þær eru í kínverskum stíl, öll húsgögn og munir eru kínverskir.
Gott aðgengi er að safninu, hjólastólavæddir geta ekið beint frá gangstéttinni, inn í sýningarsalinn. Safnið er opið almenningi á laugardögum og sunnudögum, kl 14.00-16.00, en allir frá 12 ára aldri, eru velkomnir, aðgangseyrir er kr 1000.-. Einnig er hægt að panta sérsýningar, einstaklingar sem hópar, eru þar velkomnir. Símar: 551 2596 + 868 2726. Vefsíða: www.kinaklubbur.weebly.com Netfang: [email protected]. Kínaklúbbur UnnarUnnur Guðjónsdóttir stofnaði KÍNAKLÚBB UNNAR, árið 1992, til að fræða fólk um Kína. Ferðir hafa verið farnar þangað og fyrirlestra hefur hún haldið um Kína gegnum árin. Skipulagðar ferðir verða ekki lengur farnar, en fólk getur fengið fjölmargar upplýsingar um "land og þjóð", hafi það áhuga á að fara til Kína. Einnig getur hver sem er pantað fyrirlestur um Kína, annað hvort í KÍNASAFNI UNNAR, á Njálsgötu 33, eða þá einhverstaðar úti í bæ.
Fyrirlesturinn er ekki bara í töluðum orðum, heldur verða líka sýndar skyggnur, sem Unnur hefur tekið í Kína, allt frá árinu 1983. Unnur sýnir líka kínverskan dans, en hún var atvinnudansari í Svíþjóð í 30 ár. Hún hefur komið mikið við sögu dansins hér á landi, m.a. verið ballettmeistari Þjóðleikhússins. KÍNASTUNDHópar og einstaklingar geta pantað "Kínastund", annaðhvort á Njálsgötu 33, eða úti í bæ, með litskyggnumyndasýningu, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum. Einnig drukkið te og borðað eitthvað til.
|
Vefsíða: www.kinaklubbur.weebly.com